Um Farþegarvefinn
Farþegavefurinn er vettvangur fyrir þá sem vilja nýta far sem býðst í einkabíl með öðrum og þá sem vilja bjóða öðrum far í einkabíl.
Með því að bjóða upp á heildstæðar upplýsingar um far með bifreið í boði eða laust far má segja að stofnað sé til nýs samgöngumáta hérlendis. Hér býr fámenn þjóð í stóru landi og hefur víðast reynst erfitt að koma á nægilega góðum almenningssamgöngum, hvað þá lestarsamgöngum, milli staða utan höfðuborgarsvæðisins og má raunar segja það sama um hluta höfuðborgarsvæðisins. Því hafa landsmenn reitt sig meira á einkabílinn en víðast annars staðar. Er margt sem bendir til þess að þeir sem af einhverjum ástæðum geta ekki nýtt eigið ökutæki eigi oft erfitt með að komast um. Farþegavefnum er ætlað að koma lítið eitt til móts við þetta fólk og nýta þá tækni sem netið og farsímar bjóða upp á og mæta þeirri þörf sem ætla má að sé fyrir upplýsingar um laust far eða far í boði með einkabifreið.
Þessum ferðamáta er ekki ætlað að keppa við þá sem fyrir eru, þ.e. strætisvagna, áætlunarbíla, leigubíla eða flug, heldur miklu fremur að vera viðbót á þeim stöðum sem fyrrnefndu samgöngumátarnir eru ekki í boði eða nýtast ekki, allt í því skyni að minnka þörf fyrir einkabílinn.
Ávinningur af þessu fyrir samfélagið eru fjölbreyttari samgöngumátar; betri nýting verðmæta, þ.e. ökutækja og umferðarmannvirkja; minni umferð og þar með væntanlega aukið umferðaröryggi; minni orkunotkun; minni mengun; minna vegslit; minni þörf fyrir bifeiðastæði og þar með landrými; fjárhagslegur sparnaður farþega og vonandi skemmtilegra samfélag.
Ávinningur fyrir þá sem bjóða far er betri nýting ökutækisins; oft aukið öryggi þar sem fleiri fylgjast með akstrinum eða eru á ferð á fáförnum slóðum stundum við erfiðar aðstæður; ávinningur vegna þátttöku farþega í kostnaði ef um það hefur samist; aukið öryggi og hugsanlega góður félagsskapur.
Ávinningur þeirra sem þiggja far er að komast leiðar sinnar á þægilegan og ódýran hátt og jafnvel sér að kostnaðarlausu og hugsanlega góður félagsskapur. Draga úr þeirri einbeitingu sem fylgir akstri ekki síst í mikilli umferð eða úti á vegum þar sem umferð er oft hröð.
Farþegavefurinn er ekki rekinn í hagnaðarskyni en til skoðunar er hvernig fá megi tekjur á móti kostnaði. Er þar einkum horft til þess að leita eftir styrkjum frá opinberum aðilum eða öðrum þeim sem hugsanlega vilja styrkja þetta framtak og síðar kemur til skoðunar að fá hlutdeild af greiðslum farþega í kostnaði ökumanns við aksturinn ef til þess kemur að farið verði að innheimta gjald eins og er í athugun.
Engin sérstök lög eða reglur gilda um vef sem þennan, en áformað er að semja drög að reglum sem stuðst verður við og birtar verða á vefnum.
Víða í nágrannalöndunum eru vefir sem miðla upplýsingum um laust far eða far í boði með einkabifreiðum. Sjá m.a. :
Pendler.net og turen.dk í Danmörku
tfl.gov.uk í London
mitfahrgelegenheit.de í Þýskalandi
Einngi má fá ýmsar upplýsingar á netinum með því að fletta upp ensku leitarorðunum carpooling, ridshare, car-sharing, ride-sharing, liftsharing o.fl.
Farþegavefurinn er kostaður og rekinn af Leið ehf. í Bolungarvík, sem er félag um framþróun í samgöngum á landi. Veffang www.leid.is Netfang leid@leid.is
Framtíðin
Á vettvangi Farþegavefsins er ýmislegt til skoðunar til framtíðar litið. Má þar nefna eftirfar-andi:
Verið er að kanna kosti þess að koma upp greiðslukerfi fyrir far þannig að þeir sem þiggja far geti greitt með GSM símum með því að senda SMS í tiltekið símanúmer. Tæknilega er ekkert þessu til fyrirstöðu en verið er að kanna lagalega hlið málsins.
Koma upp símaþjónustu (gjaldsíma) tengda vefnum þannig að hringja megi í tiltekið númer og spyrjast fyrir um laust far eða farþega sem óska fars og eins að láta skrá sig ef ekki er verið nálægt tölvu.
Gert er ráð fyrir að óska megi sérstakrar skráningar á farþegavefnum og þeir sem skrái sig fái sent sérstakt merki eða logo til að líma í bílrúðu hægra megin uppi eða fyrir farþega á spjald eða t.d. farsíma sinn. Þetta ætti að trygga ákveðið öryggi og öryggistilfinningu bæði ökumanns og farþega.
Á nokkrum götum eru sérstakar akgreinar sem einungis eru ætlaðar strætisvögnum og leigubifreiðum. Af hálfu Farþegavefsins hefur þeirri hugmynd verið komið á framfæri að heimila ætti öllum ökutækjum sem í eru fleiri en einn einstaklingur að nýta sér þessar akgreinar. Hefur m.a. samgöngunefnd alþingis verið sent erindi í þessa veru í tengslum við breytingu á umferðarlögum nr. 50/1987.
Hugsanlega verður síðar komið upp skiltum með merki Farþegavefsins fyrir þá sem vilja freista þess að fá far með því að bíða við skiltin þar til far býðst. Slík skilti gætu t.d. verið þar sem fólks safnast saman, við skóla, skíðasvæði, útihátíðir, samgöngumiðstöðvar o.fl. o.fl.
Þriðju kynslóðar farsímar bjóða upp á ýmsa möguleika, t.d. beinan netaðgang. Athugað verður hvaða kosti þeir hafa við að nýta Farþegavefinn sem best. Sama á við um Facebook. Einnig er verið að skoða ýmsar kortalausnir.
Vænta má þess að helsta efnið sem er á Farþegavefnum verði þýtt á nokkur önnur tungumál önnur en íslensku.